Drekaskátamót 2026

Drekaskátamót 2026 verður haldið helgina 5. – 7. júní 2025, en líkt og síðustu ár verður mótið yfir heila helgi. Skátarnir gista því tvær nætur frá föstudegi fram á sunnudag.

Dagsetning
05.06.26 10:10-07.06.26 10:10
Staðsetning
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni
Aldurshópar
Drekaskátar

Verð

Mótsgjaldið verður birt sem fyrst en gera má ráð fyrir að innifalið í verðinu verður tjaldsvæðið (félögin koma sjálf með tjöld), kvöldmatur og kvöldkaffi bæði föstudag og laugardag ásamt allri dagskrá.

Athygli er vakin á að skátafélögin sjálf bæta oft sameiginlegum kostnaði ofan mótsgjaldið sem þau rukka beint til sín. Þá er yfirleitt verið að greiða fyrir t.d. ferðakostnaði á mótsvæðið, sameiginlegum mat, sameiginlegum sveitareinkennum eða auka búnaði sem félagið þarf það bæta við.

Skráning

Skráning á mótið fer fram inn á skraning.skatarnir.is en hún opnast þegar verðið er komið á hreint.

En við skráningu er mikilvægt er að velja rétt skátafélag svo skátafélögin sjái skráningu sína skáta.

Vakin er athygli á því að stundum vilja sum félög halda sjálf utan um alla skráningu og rukkað fyrir bæði mótsgjald og sameiginlegan kostnaði hjá sér og því mikilvægt að fylgjast með hjá sínu skátafélagi hvernig þau vilja halda utan um skráningar.

Dagskrá og undirbúningur

Dagskrá verður með svipuðu sniði og hefur tíðkast en nánari upplýsingar um ítarlega dagskrá munu berast til skátafélaganna í upplýsingabréfum mótstjórnar.